Ný vefsíða

Æfingabækurnar hafa fengið andlitslyftingu með nýrri vefsíðu og nýrri kápufyrirsætu á æfingadagbókunum. Það er hann Kisi sem prýðir forsíður æfingadagbókanna í vetur, en hann ákvað að gera sig heimakominn hjá okkur í sumar og hefur unnið sér inn fyrir matargjöfinni með fyrirsætustörfum.